VER ehf © All rights reserved
VER ehf, Merkigerð 18 - 300 Akranesi - Iceland
S: +354 431 1111 - F: 431 1010 - E-mail ver@ver-ehf.is
Fyrirtækið:
VER ehf er innflutningsfyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu við sjávarútveginn. Fyritækið var stofnað árið 1982 á Akranesi og hefur verið rekið þar síðan.
Hefur markmið félagsins verið að bjóða upp á fyrsta flokks vörur fyrir sjávarútveginn og stuðla að innleiðingu nýjunga sem auka öryggi og hag viðskiptavina félagsins.
VER ehf er með lagerinn að Faxabraut 7 Akranesi, þar sem Nótastöðin hf var til húsa.
Orðið VER þýðir jafnframt haf og/eða útgerðarstaður. Það að “fara í verið” þýddi í gamla daga það að bændur fóru úr sveitinni til strandar í útgerðastöð á útmánuðum til veiða. Orðið VER er einnig notað í samsettum orðum og þá í tengslum við viðskipti eins og verslun. Orðið á þess vegna vel við þetta fyrirtæki sem starfar á sviði viðskipta með vörur fyrir sjávarútveginn.
VER ehf hefur verið starfandi sðan 1982. Viðskiptasambönd þess ná til margra landa eins og Hollands, Spánar, Portúgal, Skotlands, USA og Noregs. Fyrirtækið selur vörur víða um heim og hefur einkasölu á ýmsum vörum í mörgum löndum. Meginmarkmið fyrirtækisins er áreiðanleiki, heiðarleiki og lipurð. Með nútíma samskiptatækni er fyrirtækinu mögulegt að sinna viðskiptum hvar sem er í heiminum.
Magnús H Sólmundsson, framkvæmdarstjóri. Er einn af eigendum félagsins og hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 1986. GSM númer: 840 6666
| VER - english |
| Ymuiden Stores Holland |
| Euronete |
| Silverline |
| Ecogrid |
| Kettenfabrik Mester |